Eiríkur Haraldsson

Steinþór Stefánsson

Reykjavík - 1891 - 1967

Steinþór Matthías Stefánsson skráði nafn sitt í sögu íslenskrar byssusmíði fyrir miðja 20. öldina.

Hann var Þingeyingur, fæddur að Litlu Laugum í Reykjadal, og átti heima á Húsavík árið 1915. Þá var hann kvæntur Guðrúnu Halldórsdóttur og eignuðust þau fjögur börn, Stefán Jón (1915-2009), Hólmfríði (1917-2013), Halldór (1919-2015) og Gunnar (1920-2011).

Fimm árum síðar var Steinþór skráður til heimilis að Álfhóli í Húsavíkurhreppi, fráskilinn og starfaði sem járnsmiður.

Á leið suður

Hann fór til Reykjavíkur í atvinnuleit og var þar þegar spænska veikin geisaði haustið og fram á vetur 1918. Hann flutti ekki aftur norður en fór til Norður-Noregs um 1920 í atvinnuleit. Þar vann hann meðal annars í vélsmiðju þar sem voru smíðaðar byssur. Hann sneri aftur heim frá Noregi og var skráður með búsetu í Reykjavík frá 1925 og bjó þar upp frá því.


Byssusmiðurinn SMS

Steinþór smíðaði hér á landi haglabyssur í ýmsum útfærslum í hlaupvíddum .410, 16 ga. og 12 ga. á árunum 1926 – 1960. Vitað er með vissu um ellefu byssur sem Steinþór smíðaði en vísbendingar eru um að þær hafi verið fleiri. Níu þeirra byssa, sem hafa varðveist, smíðaði Steinþór frá grunni og lagði hönd á tvær til viðbótar sem enn eru til.

Allar eru þær merktar með upphafsstöfum hans SMS og númerum 1 – 11. Byssurnar voru skráðar á skotvopnaskrá árið 2004. Þær eru allar einskota en lásgerðirnar mismunandi.

Talið er að Lárus Salómonsson (1905–1987), lögreglumaður og glímukappi, hafi fengið tvær byssur hjá Steinþóri og hafi önnur þeirra verið .410 haglaskammbyssa og hin 12 ga. haglabyssa.

Þetta hefur þó ekki fengist staðfest, þrátt fyrir mikla leit.

Afi var flottur karl

Steinþór Stefánsson húsasmíðameistari (f. 1951), sonarsonur Steinþórs byssusmiðs, var rúmlega 16 ára þegar afi hans dó. „Við áttum heima að Vitastíg 20 og þar var pabbi með smíðaverkstæði í kjallaranum. Hann var mjög laghentur og smíðaði húsgögn. Afi átti stóran rennibekk sem hann hafði smíðað og var með hann á verkstæðinu hans pabba."

Steinþór

" Það fór aldrei leynt að afi smíðaði byssur og hann hafði mikinn áhuga á þeim. Hann kom oft á verkstæðið hjá pabba til að vinna í rennibekknum og smíðaði þar skeftin á byssurnar. Ég dáðist að handverki hans sem krakki.
Hann var lunkinn sá gamli. Þetta var allt handunnið.

Ég heyrði að hann hefði unnið hlaupin og aðra járnsmíði í Vélsmiðjunni Héðni.

Steinþór

Þetta voru aðallega haglabyssur en afi smíðaði líka haglaskammbyssur og kallaði þær refabyssur.

Skotin í þær voru svona líkt og litli fingur á fullorðnum karlmanni (kaliber .410). Ég man að það var talað um það að Lárus Salómonsson (1905–1987) lögreglumaður hefði fengið tvær byssur hjá afa.

Önnur var svona lítil haglaskammbyssa og hin stór haglabyssa.”

Safngripir á Veiðisafninu

Steinþór yngri fékk ellefu byssur afa síns frá Halldóri föðurbróður sínum, sem hafði erft þær frá föður sínum.

Steinþór segir að Halldór hefði óskað eftir því að byssurnar færu á safn – helst allar saman.
Það mun einnig hafa verið ósk Steinþórs byssusmiðs. Steinþór yngri ánafnað Veiðisafninu á Stokkseyri byssunum sem afi hans smíðaði þann 26. febrúar 2025.

Þær eru nú í vörslu þess og hluti af sýningu safnsins.

Frumlegar lausnir og uppfinningar

Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður, sem hefur mikla þekkingu á eldri byssum, skoðaði byssurnar frá Steinþóri heitnum og gerði úttekt á smíði þeirra og gerð. Skoðunin leiddi m.a. í ljós að Steinþór hafði smíðað hlaupin á fimm af byssunum en fjórar voru með Kongsberg-hlaup.

Lásgerðirnar voru býsna fjölbreyttar og sýna að Steinþór var frumlegur og hugmyndaríkur byssusmiður. 

Steinþór

Lásarnir á fjórum byssanna voru útfærslur af griplási þar sem byssurnar spenntust upp við að vera opnaðar.

Einnig hafði Steinþór smíðað einhleypur með hamri og voru mismunandi útfærslur á hömrunum og hlutverki þeirra.

Á sumum var hamarinn dreginn alveg aftur til að opna byssuna, á annarri var handfang á hægri hlið byssunnar og hægt að opna byssuna þegar það var í öftustu stöðu.

Á annarri var handfangið aftan á láshúsinu.

Steinþór fór ólíkar leiðir í að smíða öryggi á byssurnar. Á einni er öryggið fyrir aftan fremsta hluta gikkbjargar og læsir gikknum. Á öðrum byssum er öryggið armur fyrir aftan gikkinn og er honum snúið um 180° til að læsa gikknum.

Steinþór

Sérstökust er byssa með því sem kallað er takkalás.

Á henni þarf að ýta forskeftinu fram til að spenna byssuna. Hleypt er af með því að ýta á hnapp ofan á byssunni.
Öryggið er undir takkanum og læsir honum þegar það er á.

Á þessari byssu er því enginn gikkur neðan á skeftinu.
Þessi útfærsla er líklega uppfynning Steinþórs.


Guðni Einarsson - Jóhann Vilhjálmsson – Páll Reynisson Diljá A.K.Gray

Einar Bjarnason

c.a 1750

Bóndi Skaftafelli í Öræfum, býr þar um 1750 og smíðar að sögn Eggerts Ólafssonar forláta byssur , sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jósep Jóhannesson

ca. 1839 – 1915 Akureyri

Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Þorsteinsson

1880 - 1968 Ólafsfirði

Smíðar nokkrar byssur fyrir 1920 og á árunum 1949 til 1956 smíðaði hann töluvert af byssum í fjórum stærðum, 4ga. 8ga. 10ga. og 12ga. og vitað er um eina 16ga. JÞ byssur 

Jóni Þorsteinssyni verða gerð nánari skil hér 2027

Drifurnar boltar

Steinþór M. Stefánsson

1891 - 1967 Reykjavík

9 byssur smíðaðar af honum á Veiðisafninu, þar af ein hagla-skammbyssa - .410 skothylki.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Björnsson

1907 - 1991 Dalvík

Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Engilbert M. Ólafsson

1914 – 1989 Ísland / USA

Skeptissmiður stórhöfðingja Vann lungann úr starfsævi sinni í Bandaríkjunum. Þar vann hann við að sérsmíða byssur hjá þekktum byssusmiðjum eins og WEATHERBY og PACHMAYR.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Eiríkur Haraldsson

f. 1940

Smíðaði 5 skammbyssur. Ísl. Þruman. Nákvæm eftirgerð af Army Colt. Einnig smíðaði hann eina haglabyssu 8ga. einhleypu og 20ga með boltalás og kláraði að smíða eina haglabyssu frá Jóni Þorsteins – Ólafsfirði

Lesa meira