Eiríkur Haraldsson

Eiríkur Haraldsson

rennismiður - Reykjavík - 1940

Eiríkur Haraldsson (f. 1940) rennismiður, strýkur fingri mjúklega yfir glansandi skotgeymi einnar af Þrumu SAA marghleypunum, sem hann smíðaði, og segir: „Sérðu hvað sílenderinn glansar? Hann er úr krómnikkelstáli en hitt er úr venjulegu kolefnisstáli. Ég skoðaði efnið í orginalnum og það var ekkert sérstakt.”

Íslenska marghleypan Þruma SAA

Byssan er völundarsmíði og glæsileg á að líta. Þruma SAA númer 2 er önnur af tveimur skammbyssum sem Eiríkur smíðaði árið 1987. Fyrirmyndin var óvirk eftirlíking af Colt Single Action Army (SAA) marghleypu (M1873).

Colt verksmiðjurnar hönnuðu þessa marghleypu fyrir Bandaríkjastjórn árið 1872 og var hún aðal skammbyssa bandarískra hermanna frá 1873 til 1892. Hún var líka vinsæl hjá lögreglu, bændum, kúrekum og útlögum í villta vestrinu og víðar um heim. En hvað kom til að Eiríkur smíðaði þessar byssur?

Fyrirmyndin var óvirk eftirlíking af Colt Single Action Army (SAA) marghleypu (M1873). Colt verksmiðjurnar hönnuðu þessa marghleypu fyrir Bandaríkjastjórn árið 1872 og var hún aðal skammbyssa bandarískra hermanna frá 1873 til 1892. Hún var líka vinsæl hjá lögreglu, bændum, kúrekum og útlögum í villta vestrinu og víðar um heim. En hvað kom til að Eiríkur smíðaði þessar byssur?

frá grunni

„Halldór heitinn Jónsson, verkfræðingur og forstjóri Steypustöðvarinnar, átti þó nokkrar byssur og var að skjóta sér til gamans. Hann kom til mín með óvirka en nákvæma eftirlíkingu af Colt SAA rúllettubyssu og bað mig að smíða fyrir sig þannig byssu sem virkaði. Hann nuddaði í mér þar til ég féllst á að gera þetta. Ég gat mælt fyrirmyndina alla upp og haft hana til hliðsjónar. Fyrirmyndin var í kaliber .45 en Halldór vildi fá kaliber .357 Magnum. Sjálfur hefði ég valið .22 LR en Halldór réði. Hann vildi hafa þetta kraftmikið,” segir Eiríkur.

„Ég ákvað að smíða tvær byssur og ætlaði að eiga aðra sjálfur. Byssurnar smíðaði ég alveg frá grunni, bjó meira að segja til skrúfurnar! Halldór fékk Þrumu númer 1, sem var krómuð en það var algjört stílbrot, að mínu mati.

Ólafur, bróðir Halldórs og viðskiptafræðingur sem vann líka hjá Steypustöðinni, svældi seinni byssuna út úr mér,” segir Eiríkur og hlær við. Byssa Ólafs, Þruma númer 2 frá 1987, er nú á Veiðisafninu á Stokkseyri. Síðar, eða 2016 og 2017, smíðaði Eiríkur þrjár eins byssur til viðbótar.

Þruman ber nafn með rentu

Fyrirmyndin sem Eiríkur smíðaði eftir var með sex þumlunga (15,24 sm) löngu hlaupi. Eiríkur hafði hlaupið aðeins lengra á Þrumunum SAA, því þeim Halldóri og Ólafi þótti meiri stæll yfir því. En hvers vegna gaf hann byssunum nafnið Þruma SAA (Single Action Army)? „Það er auðvitað svoddan þruma þegar skotið er úr þessu.

 Það skýtur enginn úr svona byssu nema að vera með góðar heyrnarhlífar. Rúllettubyssur eru háværari en aðrar skammbyssur vegna þess hvernig þær eru uppbyggðar, hvellurinn á svo greiða leið úr skothúsinu út í umhverfið,” segir Eiríkur.

Drifurnar boltar

Aðspurður segir Eiríkur að einungis eitt atriði í smíði fyrstu Þrumunnar hefði vafist aðeins fyrir honum.

Það var hvernig átti að ganga frá pinna, svokallaðri hönd, sem ýtist upp úr gikkhúsinu og snýr skotgeyminum þegar hleypt er af nýju skoti.

„Þessi pinni er ekki sívalur heldur flatur á tvær hliðar og rúnnaður á hinar. Ég leysti þetta með því að bora tvö göt, alveg samsíða, og svo þurfti ég að opna á milli þeirra með þjöl. Mér tókst það í fyrstu tilraun,” segir Eiríkur.

Drifurnar boltar

Hann veit ekki hvað smíðin á hverri marghleypu tók langan tíma. Eiríkur var sjálfs síns herra og gat hlaupið í byssusmíðina á milli annarra verkefna, en hélt ekki saman vinnustundunum í þessu verkefni.

Auk Þrumanna fimm hefur Eiríkur smíðað nokkrar haglabyssur. „Ég smíðaði haglabyssu í hlaupvídd 8 án þess að hafa neina fyrirmynd. Ég smíðaði líka einhleypta haglabyssu með boltalás í hlaupvídd númer 20 og notaði hana aðeins á rjúpu. 

Tengingar

Svo lauk ég við hálfkláraða haglabyssu sem Jón Þorsteinsson (1880-1968), byssusmiður á Ólafsfirði skildi eftir sig. Maður á Akureyri eignaðist hana og ég smíðaði hlaup á byssuna fyrir hann. Haninn til að trekkja upp verkið var utanáliggjandi og mér þótti fallegt handbragð á þessari byssu hjá Jóni.”

Á þeim tíma smíðaði ég haglabyssuna númer 20 með boltalásnum. Áður hafði ég smíðað einskota, framhlaðnar pístólur. Þær voru bara prófaðar og svo aldrei skotið úr þeim meir.

Eiríkur stofnaði Smiðjukot árið 1998. Þar smíðaði hann haglabyssu númer 8, með „falling block“ griplás. Erfitt var að fá patrónur númer 8. Sementsverksmiðjan notaði haglaskot númer 8 til að brjóta gjall úr katlinum hjá sér. Patrónurnar voru með aukahring sem þurfti að sverfa af til að þær pössuðu í haglabyssuna.

Einnig smíðaði Eiríkur á þessu tímabili seinni Þrumurnar þrjár.

Guðni Einarsson - Veiðisafnið

Einar Bjarnason

c.a 1750

Bóndi Skaftafelli í Öræfum, býr þar um 1750 og smíðar að sögn Eggerts Ólafssonar forláta byssur , sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jósep Jóhannesson

ca. 1839 – 1915 Akureyri

Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Þorsteinsson

1880 - 1968 Ólafsfirði

Smíðar nokkrar byssur fyrir 1920 og á árunum 1949 til 1956 smíðaði hann töluvert af byssum í fjórum stærðum, 4ga. 8ga. 10ga. og 12ga. og vitað er um eina 16ga. JÞ byssur 

Jóni Þorsteinssyni verða gerð nánari skil hér 2027

Drifurnar boltar

Steinþór M. Stefánsson

1891 - 1967 Reykjavík

9 byssur smíðaðar af honum á Veiðisafninu, þar af ein hagla-skammbyssa - .410 skothylki.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Björnsson

1907 - 1991 Dalvík

Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Engilbert M. Ólafsson

1914 – 1989 Ísland / USA

Skeptissmiður stórhöfðingja Vann lungann úr starfsævi sinni í Bandaríkjunum. Þar vann hann við að sérsmíða byssur hjá þekktum byssusmiðjum eins og WEATHERBY og PACHMAYR.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Eiríkur Haraldsson

f. 1940

Smíðaði 5 skammbyssur. Ísl. Þruman. Nákvæm eftirgerð af Army Colt. Einnig smíðaði hann eina haglabyssu 8ga. einhleypu og 20ga með boltalás og kláraði að smíða eina haglabyssu frá Jóni Þorsteins – Ólafsfirði

Lesa meira