Jósep Jóhannesson
Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að. Hann byggði sér hús sama ár, á lóð sem síðar varð númer 23 við Strandgötu.
Hann hóf strax veitingarekstur í húsinu og bauð upp á gistingu, því hann taldi að hann gæti ekki framfleytt sér eingöngu á iðn sinni, þó hann væri talinn afbragðssmiður og hafði lært iðn sína erlendis.
Árið 1883 seldi Jósep Norðmanninum Olaus Housken húsið, en hann hafði komið frá Stafangri árið áður sem umboðsmaður útgerðar Berentsens
Guðlaug Vilbergsdóttir
RIFA
Talið er að Jósep hafi smíðaði í það minnsta 4 byssur líklega fyrir 1890 í skotastærð 8ga. oft kallaðar selabyssur.
RIFA var þekkt stór haglabyssa byssa frá honum. Kristinn Kristjánsson - Nýhöfn gerði við byssu smíðaða af Jósep eftir 1915, líklega RIFA byssan sem var breytt við þá viðgerð.
Nánar um Jósep er að finna í Sögu Akureyrar eftir Klemens Jónsson, Árbók Þingeyinga 1964 - Selaróður eftir Guðmund Þorsteinsson frá Lundi, einnig í ævisögu Jóhennesar á Borg og Íslenskum sjávarháttum
Einar Bjarnason
c.a 1750
Bóndi Skaftafelli í Öræfum, býr þar um 1750 og smíðar að sögn Eggerts Ólafssonar forláta byssur , sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.
Lesa meira
Jósep Jóhannesson
ca. 1839 – 1915 Akureyri
Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að.
Lesa meira
Jón Þorsteinsson
1880 - 1968 Ólafsfirði
Smíðar nokkrar byssur fyrir 1920 og á árunum 1949 til 1956 smíðaði hann töluvert af byssum í fjórum stærðum, 4ga. 8ga. 10ga. og 12ga. og vitað er um eina 16ga. JÞ byssur
Jóni Þorsteinssyni verða gerð nánari skil hér 2027
Steinþór M. Stefánsson
1891 - 1967 Reykjavík
9 byssur smíðaðar af honum á Veiðisafninu, þar af ein hagla-skammbyssa - .410 skothylki.
Lesa meira
Jón Björnsson
1907 - 1991 Dalvík
Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.
Lesa meira
Engilbert M. Ólafsson
1914 – 1989 Ísland / USA
Skeptissmiður stórhöfðingja Vann lungann úr starfsævi sinni í Bandaríkjunum. Þar vann hann við að sérsmíða byssur hjá þekktum byssusmiðjum eins og WEATHERBY og PACHMAYR.
Lesa meira
Eiríkur Haraldsson
f. 1940
Smíðaði 5 skammbyssur. Ísl. Þruman. Nákvæm eftirgerð af Army Colt. Einnig smíðaði hann eina haglabyssu 8ga. einhleypu og 20ga með boltalás og kláraði að smíða eina haglabyssu frá Jóni Þorsteins – Ólafsfirði
Lesa meira