Einar Bjarnason
Bóndi Skaftafelli í Öræfum
Býr þar um 1755 og smíðar forláta byssur, sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.
listasmiður
Í ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar 1752 – 1757 segi m.a."Einn listasmið verðum við að nefna hér og geta smíða hans honum til verðugs lofs. Hann heitir Einar og er bóndi í Skaftafelli, ráðvandur maður og hæverskur í framkomu. Honum hafði með mikilli fyrirhöfn og án allrar aðstoðar tekizt að smíða byssur.
Hlaupið var steypt úr látúni þriggja feta langt, en lásinn, eins og venja er til, úr járni og stáli. Honum sagðist svo frá, að sér hefði reynzt torveldast að gera lásinn fullkomlega öruggan.
Við skoðuðum verkfæri hans, sem hann sjálfur hafðismíðað og notað bæði til byssusmíðanna og annara hluta.
Einnig sáum við byssur eftir hann víðar en á einum stað, og höfðu nágrannar hans fengið þær hjá honum. Við getum borið því vitni, að þær voru góð skotvopn. Bóndi þessi er sjálfur ágæt skytta, og skaut hann refi, seli og hvítabirni, sem stundum koma þar að ströndinni með hafís, með byssum þeim, er hann hafði smíðað."
Ferðabók Eggerts Ólafssonsr og Bjarna Pálssonar 1752-1757 - Bókaútg. Örn og Örlygur hf. 1981
Einar Bjarnason
c.a 1750
Bóndi Skaftafelli í Öræfum, býr þar um 1750 og smíðar að sögn Eggerts Ólafssonar forláta byssur , sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.
Lesa meira
Jósep Jóhannesson
ca. 1839 – 1915 Akureyri
Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að.
Lesa meira
Jón Þorsteinsson
1880 - 1968 Ólafsfirði
Smíðar nokkrar byssur fyrir 1920 og á árunum 1949 til 1956 smíðaði hann töluvert af byssum í fjórum stærðum, 4ga. 8ga. 10ga. og 12ga. og vitað er um eina 16ga. JÞ byssur
Jóni Þorsteinssyni verða gerð nánari skil hér 2027
Steinþór M. Stefánsson
1891 - 1967 Reykjavík
9 byssur smíðaðar af honum á Veiðisafninu, þar af ein hagla-skammbyssa - .410 skothylki.
Lesa meira
Jón Björnsson
1907 - 1991 Dalvík
Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.
Lesa meira
Engilbert M. Ólafsson
1914 – 1989 Ísland / USA
Skeptissmiður stórhöfðingja Vann lungann úr starfsævi sinni í Bandaríkjunum. Þar vann hann við að sérsmíða byssur hjá þekktum byssusmiðjum eins og WEATHERBY og PACHMAYR.
Lesa meira
Eiríkur Haraldsson
f. 1940
Smíðaði 5 skammbyssur. Ísl. Þruman. Nákvæm eftirgerð af Army Colt. Einnig smíðaði hann eina haglabyssu 8ga. einhleypu og 20ga með boltalás og kláraði að smíða eina haglabyssu frá Jóni Þorsteins – Ólafsfirði
Lesa meira