Byssusmiðir

Byssusmiðir fyrri tíma á Íslandi

Heimildir frá 1750 - 1991

Fyrstu heimildir um byssusmiði á Íslandi eru frá því um miðja 18. öld.

Eitt af rannsóknarverkefnum Veiðisafnsins hefur verið gagnasöfnun og skráning heimilda þar að lútandi. Má þar m.a. nefna Drífu haglabyssur Jóns Björnssonar frá Dalvík, sem allar eru fundnar, en hann smíðaði 120 eintök. Haglabyssur frá Jóni Þorsteinssyni frá Ólafsfirði eru minna þekktar og er vinnsla enn í gangi með heimildasöfnun um hans byssusmíði.

Íslensk byssusmíði er fyrst og fremst haglabyssusmíði og er um að ræða haglabyssur frá stærðum .410 minkabyssur upp í stórar 4 ga. selabyssur, eins og þær voru oft kallaðar. Einnig hafa verið smíðaðar skammbyssur og ber að nefna byssur Eiríks Haraldssonar sérstaklega í því sambandi sem og haglabyssur Steinþórs M. Stefánssonar sem nýlega komu fram.

Einar Bjarnason

c.a 1750

Bóndi Skaftafelli í Öræfum, býr þar um 1750 og smíðar að sögn Eggerts Ólafssonar forláta byssur , sem eru almennt talin góð skotvopn og snillldar vel gerðar.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jósep Jóhannesson

ca. 1839 – 1915 Akureyri

Jósep Jóhannesson járnsmiður var einn fyrsti byssusmiður Íslendinga. Árið 1879 kom hann til Akureyrar í annað sinn, og nú til að setjast þar að.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Þorsteinsson

1880 - 1968 Ólafsfirði

Smíðar nokkrar byssur fyrir 1920 og á árunum 1949 til 1956 smíðaði hann töluvert af byssum í fjórum stærðum, 4ga. 8ga. 10ga. og 12ga. og vitað er um eina 16ga. JÞ byssur 

Jóni Þorsteinssyni verða gerð nánari skil hér 2027

Drifurnar boltar

Steinþór M. Stefánsson

1891 - 1967 Reykjavík

9 byssur smíðaðar af honum á Veiðisafninu, þar af ein hagla-skammbyssa - .410 skothylki.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Jón Björnsson

1907 - 1991 Dalvík

Jón Björnsson er fæddur í Göngustaðakoti í Svarfaðardal, búsettur á Dalvík, var húsgagnasmiður að mennt og vann við húsgagnasmíði og húsbyggingar í mörg ár, en um 1977 fór hann að fást við byssusmíði.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Engilbert M. Ólafsson

1914 – 1989 Ísland / USA

Skeptissmiður stórhöfðingja Vann lungann úr starfsævi sinni í Bandaríkjunum. Þar vann hann við að sérsmíða byssur hjá þekktum byssusmiðjum eins og WEATHERBY og PACHMAYR.

Lesa meira
Drifurnar boltar

Eiríkur Haraldsson

f. 1940

Smíðaði 5 skammbyssur. Ísl. Þruman. Nákvæm eftirgerð af Army Colt. Einnig smíðaði hann eina haglabyssu 8ga. einhleypu og 20ga með boltalás og kláraði að smíða eina haglabyssu frá Jóni Þorsteins – Ólafsfirði

Lesa meira