Velkomin(n) į Veišisafnið

Veiðisafnið er einstakt á landsvísu en hvergi á Íslandi er hægt að sjá jafn fjölbreitt úrval uppstoppaðra veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra muna en hér ásamt því að fræðast um veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúruvernd .

Einstök uppsettning grunnsýningar safnsins er margrómuð en auk hennar eru settar upp sérsýningar árlega og má þar nefna byssusýningu og snertisafari – sýningu fyrir sjónskerta og blinda. Jafnframt kynningu til komandi kynslóða er varðar veiði og veiðirétt með aðaláherslu á náttúruvernd og skynsemisveiðar.

Ný uppstoppuð dýr á Veiðisafninu

Veiðisafnið - Stokkseyri - 26.07.2010

Tveir Vísundar – Amerískur Buffalo (Bos Bison) sem voru veiddir í Minnesota – USA hafa verið settir upp til sýningar í Veiðisafninu Stokkseyri, er hér um framparta að ræða.


Dýrin voru 950kg. og 1.100kg. að þyngd, fullorðnir tarfar báðir tveir og vekur stærð þeirra mikla eftirtekt. Dýrin voru felld með skammbyssu, T/C Contender cal.45-70 kúluþyngd 400gr og eru uppstoppaðir af Ted Pilgrim Taxidermy – Menahga MN. - USA

Veiðimenn eru Jónas Geir Sigurðsson og Páll Reynisson - Veiðisafnið

Jónar Transport hf. - Reykjavík og Bíltak ehf. - Selfossi fá bestu þakkir fyrir stuðninginn við innflutning dýranna til Íslands.

Um 1880 er ljóst að Vísundar í Norður Ameriku eru að verða útdauðir vegna ofveiði, en á þeim tíma voru bara einstaka hjarðir í einkaeign til og lítil villt hjörð í Yellowstone þjóðgarðinum. Í Maí 1894 eru sett lög af stjórnvöldum í Norður Ameriku til að friða þessar stóru skepnur og eftir það hefur ræktun þessara dýra gengið vel, en um 1931 er áætlað að hafi verið til nálægt 21.000 vísundar í Norður Ameríku og hefur þeim fjölgað mikið síðan.

 


OPIÐ 11:00 - 18:00
- alla daga mars - október
- eingöngu um helgar í nóvember og febrúar
- lokað í desember og janúar

Aðgangseyrir:
- Fullorðnir: 1.250kr
- Börn 6-12 ára: 650kr
- Hópaafsláttur

Upplýsingar og pantanir í síma: 483-1558
Netfang: museum@hunting.is


Flżtival