Byssusýning 2009
Veiðisafnið - Stokkseyri
Starfsár Veiðisafnsins á Stokkseyri 2009 hefst með árlegri byssusýningu í samvinnu við verslunina Vesturröst laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. febrúar 2008 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Verður fjölbreytt úrval skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, vélbyssur, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá seinni heimstyrjöld í eigu Hinriks safnara til sýnis . Einnig skammbyssur smíðaðar á Íslandi og ein af haglabyssum Jóns Þorsteinssonar frá Ólafsfirði.
Starfsmenn frá Vesturröst veita upplýsingar um þeirra söluvöru sem og fylgihluti.
Einnig verða til sýnis byssur frá Veiðisafninu sem ekki tilheyra grunnsýningu safnsins og skotvopn úr einkasöfnum m.a. annars frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá og fjölmörgum öðrum aðilum að ógleymdum Drífu-haglabyssunum frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík.
Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er
Kr.1000 fl. og 500 kr. börn 6-12 ára.
Nánari upplýsingar á www.veidisafnid.is og www.vesturrost.is
Ķsbjörn
Veiðisafnið á Stokkseyri hefur eignast ísbjörn, uppstoppaðan í fullri stærð og hefur hann verið settur upp til sýningar í sýningarsal safnsins.
Hér er um að ræða grænlenskan ísbjörn sem settur var upp af Sigurði Guðmundssyni hamskera á Akureyri en hann naut aðstoðar kennara sinna frá Svíþjóð og Danmörku við uppsetninguna. Er björninn einstaklega vel upp settur og glæsilegur, standandi á þremur fótum. Ekki er um endanlega uppstillingu að ræða þar sem hugmyndin er að setja hann upp með tveimur hvítum íslenskum refum á sérstakan sýningarpall þar sem hægt verður að skoða hann frá öllum hliðum og er ætlunin að setja þetta upp í nýjan sýningarsal safnsins sem nú er í smíðum í viðbyggingu við safnið.
Sýningargestir Veiðisafnsins hafa strax frá opnun safnsins í maí 2004 spurt mikið um ísbjörn og hefur varla liðið sú vika á þessum tíma að ekki hafi verið um hann spurt og er það okkur sönn ánægja að geta boðið sýningargestum upp á þessa viðbót í safnakosti. Rétt er til gamans að geta þess að þetta er líklega eini ísbjörninn sem vitað er um sem hefur farið í gegnum Hvalfjarðargöngin, er hann var sóttur til Akureyrar.
Veiðisafnið er opið daglega frá kl.11 til 18
