Hefur þú séð
gíraffa í dag?
Veiðisafnið er einstakt á landsvísu en hvergi á Íslandi er hægt að sjá jafn fjölbreytt úrval uppstoppaðra veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra muna en hér ásamt því að fræðast um veiðidýr, skotvopn, veiðar og náttúruvernd.
Uppsettning grunnsýningar safnsins er margrómuð en auk hennar eru settar upp sérsýningar og má þar nefna árlega byssusýningu og snertisafari – sýningu fyrir sjónskerta og blinda sem hefur verið haldin reglulega frá opnun safnsins. Hlutverk safnsins er m.a. að kynna komandi kynslóðum veiði og veiðirétt með aðaláherslu á náttúruvernd og skynsemisveiðar.
Opið fyrir hópabókanir allt árið.
Aðgangseyrir
Fullorðnir
1.950 kr
Börn 12-17 ára / Frítt fyrir yngri en 12 ára í fylgd fl.
1.450 kr
Eldri borgarar / Öryrkjar1.650 kr